Google Ads eða Meta Ads: Hvort á að byrja á?
- Hafþór Pálsson
- Aug 13
- 1 min read
Svarið er sjaldnast annað hvort/eða, heldur "það fer eftir" en það er samt raunverulegur munur á því hvenær hvor rás skilar meiru, og flest fyrirtæki velja út frá tísku frekar en út frá eigin stöðu.
1. Google Ads hentar þegar eftirspurnin er þegar til staðar Ef fólk er nú þegar að leita að því sem þú selur, hvort sem það er pípulagningaþjónustu, ákveðinni vöru, staðbundinni þjónustu, þá nærðu í þá strax. Google Ads svarar spurningum sem fólk er þegar að spyrja.
2. Meta Ads hentar þegar þú þarft að skapa áhugann sjálfur Ef varan eða þjónustan þín er ekki eitthvað sem fólk leitar beint að (t.d. ný vörumerki, hönnunarvörur, óhefðbundin þjónusta), er Meta oft betri því þar nærðu til fólks áður en það veit að það vill vöruna.
3. Budget-stærð skiptir meira máli en flestir halda Með lágt budget er oft skynsamlegra að einbeita sér að einni rás í stað þess að dreifa sér of þunnt yfir báðar og fá ófullnægjandi gögn úr hvorugri.
Rétta svarið fer eftir vörunni þinni, markhópnum og því hvar viðskiptavinurinn er staddur í kaupferlinu, ekki eftir því hvað er mest í umræðunni þessa stundina.
Ekki viss hvor rásin hentar þínu fyrirtæki? Við tökum stutt spjall og skoðum málið út frá þinni stöðu.


Comments