top of page

UM HIPHIP

Hæhæ! Gaman að sjá þig.

Ráðgjafafyrirtæki sem sérhæfir sig í markaðssetningu og rekstri lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Tilgangurinn er einfaldur: að leysa vandamál í rekstri svo fyrirtækin geti vaxið og dafnað.

NAFNIÐ

Hvaðan kemur hiphip?

Nafnið er leikur að upphafsstöfum stofnandans. Það vísar líka í kvikt umhverfi og snögga, góða þjónustu, því lítil fyrirtæki þurfa oft að bregðast hratt við, en á réttan hátt. Svo er engin tilviljun að netfangið er hurra@hiphip.is. hiphip húrra!

hiphipprofile_edited.png

Á BAK VIÐ HIPHIP

Ástríða fyrir litlum og meðalstórum fyrirtækjum er ástæða þess að hiphip varð til.

Hafþór Ingi Pálsson er eigandi og stofnandi hiphip, með yfir tíu ára reynslu af markaðsmálum lítilla og meðalstórra fyrirtækja.

Á rúmum áratug hefur hann unnið að markaðsmálum innanhúss hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Þar hefur hann líka snert á sölu, vefsíðugerð og öllu hinu sem fylgir því að vera á gólfinu í minni rekstri, en markaðsmálin hafa alltaf verið kjarninn. Sú breidd hefur skilað verkfærakistu sem nýtist vel þegar leysa þarf flókin viðfangsefni.

BSc í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og meistaragráða í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Ræturnar liggja á landsbyggðinni.

10+ ár í markaðsmálum
BSc, Háskóli Íslands
MLM, Háskólinn á Bifröst

NÁLGUN OG VINNULAG

Markaðsmál, sala, þjónusta og rekstur sem ein heild

Þetta eru samtvinnuð kerfi. Breyting á einum stað hefur áhrif annars staðar, og því þarf að skoða hlutina í samhengi, ekki í einangrun.

Langtímasamband

Markmiðið er öflugt langtímasamband sem byggir á raunverulegu virði fyrir viðskiptavininn. Með tímanum verður þekkingin á rekstrinum dýpri, vinnan markvissari og árangurinn byggist upp mánuð eftir mánuð.

Heiðarleg samskipti

Heiðarleg og uppbyggileg samskipti, þar sem allt er útskýrt á mannamáli og þú skilur alltaf hvað er gert og hvers vegna. Ef markmiðin rúmast ekki innan rammans, til dæmis vegna fjármagns, færðu að vita það strax og önnur leið er fundin saman.

Unnið saman

Unnið er náið með eigendum, stjórnendum og teymum. Lausnir eru ekki afhentar ofan frá, heldur þróaðar í sameiningu svo þær passi aðstæðum, menningu og getu hvers fyrirtækis.

Skýrleiki

Hvort sem unnið er með stefnu, ferla, þjónustu eða CRM er markmiðið alltaf skýrleiki, forgangsröðun og hagnýtar niðurstöður.

Fyrirtæki sem hiphip hefur unnið með

EGlogo_hiphip.png
Merktlogo_hiphip.png
breidlogo_hiphip.png
stillinglogo_hiphip.png
lastobjectlogo_hiphip.png

Tökum spjallið!

Viltu vita hvað hiphip getur gert fyrir þig? Bókaðu stutt kynningarspjall, án skuldbindingar.

bottom of page