PAKKARNIR / HJÁLPARI
Hægri höndin þín
Ráðgjöf, stefna og aðhald fyrir fyrirtæki sem framkvæma sjálf. Þú færð skýra forgangsröðun og einhvern til að leita til.
✓
Ánægja eða endurgreitt
✓
Engin binding
Er Hjálpari fyrir þig?
Hjálpari hentar þér ef
✓
Þú ert með fólk innanhúss sem getur framkvæmt.
✓
Þig vantar einhvern til að segja hvað skiptir máli núna.
✓
Þú vilt faglegt aðhald án þess að afhenda verkefnin.
✓
Þú vilt skýrar aðgerðir í hverjum mánuði.
✓
Þú vilt byggja upp þekkingu innanhúss.
✓
Þú vilt byrja smátt og stækka þegar reksturinn vex.
Hjálpari hentar þér ekki ef
✕
Markaðsmálin mega alveg sitja aðeins lengur á hakanum.
✕
Þér finnst best að giska á hvað virkar.
✕
Þú vilt frekar fleiri pósta en fleiri viðskiptavini.
✕
Keppinautarnir þínir mega alveg halda forskotinu.
✕
Þú vilt gera það sama og í fyrra og vonast eftir öðrum árangri.
✕
Biðlistinn af viðskiptavinum er nú þegar of langur.
INNIFALIÐ
Það sem þú færð í hverjum mánuði
Mánaðarlegur fundur
Farið yfir stöðuna, forgangsraðað og næstu skref ákveðin.
Létt greining á stöðu
Hvað er að virka og hvað ekki, skoðað í hverjum mánuði.
3 til 5 aðgerðir
Skýrar aðgerðir sem þú eða þitt fólk framkvæmir.
Ráðgjöf í tölvupósti
Spurning á milli funda? Sendu línu og þú færð svar.
Almenn ráðgjöf
Hljóðborð fyrir hugmyndir, tilboð og ákvarðanir í markaðsmálum.
SVONA VIRKAR ÞETTA
Sama hringrás í hverjum mánuði
Samstarfið hefst á spurningalista og byrjunarfundi. Eftir það fylgir hver mánuður sama takti, svo þú veist alltaf að hverju þú gengur.
01
Staðan tekin
Hvar stendur reksturinn núna og hvað hefur breyst frá síðasta mánuði?
02
Aðstæður greindar
Vefsíðan, skilaboðin, auglýsingarnar og efnið skoðuð í samhengi.
03
Verkefni mótuð
Aðgerðir mánaðarins forgangsraðaðar út frá markmiðunum.
04
Verkefni framkvæmd
Þú og þitt fólk framkvæmið aðgerðirnar, með leiðsögn þegar þarf.
05
Árangur metinn
Hvað virkaði, hvað ekki, og hvað er gert næst.
↻
Svo byrjar hringrásin aftur, og hver mánuður byggir á því sem virkaði síðast.
ÁHYGGJULAUST SAMSTARF
Ánægja eða endurgreitt
Ef samstarfið stenst ekki væntingar og markmiðin sem sett eru í upphafi færðu fyrsta mánuðinn endurgreiddan að fullu.
ENGIN BINDING
Eina bindingin er árangur
Það er enginn ávinningur í því að halda viðskiptavinum í samstarfi sem þeir eru ekki sáttir við. Þú getur skipt um pakka eða hætt þegar þér hentar.
TAKMARKAÐUR FJÖLDI
Einungis örfá pláss í boði
Ástæðan er einföld: hiphip vinnur með afmörkuðum fjölda viðskiptavina í einu, til að veita hverjum og einum bestu þjónustuna.
Þarftu annað umfang?
MEIRA UMFANG
Séní, markaðsfulltrúi til leigu
86.800 kr.
Aðgerðaáætlun og létt framkvæmd í hverjum mánuði.
Verð á mánuði með vsk.