PAKKARNIR / SÉNÍ
Markaðsfulltrúi til leigu
Mánaðarleg aðgerðaáætlun og létt framkvæmd, fyrir fyrirtæki sem vilja meira en ráðgjöf en þurfa ekki fullt umfang.
✓
Ánægja eða endurgreitt
✓
Engin binding
Er Séní fyrir þig?
Séní hentar þér ef
✓
Þú vilt skýra áætlun í hverjum mánuði.
✓
Þú vilt aðstoð við framkvæmdina án þess að afhenda allt.
✓
Þú ert með fólk innanhúss sem vantar faglegan stuðning.
✓
Þú vilt að auglýsingar og textar séu yfirfarnir af fagaðila.
✓
Þú vilt vita hvað var gert og hvers vegna.
✓
Það er komið að næsta skrefi í markaðsmálunum.
Séní hentar þér ekki ef
✕
Markaðsmálin mega alveg sitja aðeins lengur á hakanum.
✕
Þér finnst best að giska á hvað virkar.
✕
Þú vilt frekar fleiri pósta en fleiri viðskiptavini.
✕
Keppinautarnir þínir mega alveg halda forskotinu.
✕
Þú vilt gera það sama og í fyrra og vonast eftir öðrum árangri.
✕
Biðlistinn af viðskiptavinum er nú þegar of langur.
INNIFALIÐ
Það sem þú færð í hverjum mánuði
2 fundir í mánuði
Regluleg samskipti svo verkefnin haldist á hreyfingu.
Mánaðarleg aðgerðaáætlun
Forgangsraðaðar aðgerðir fyrir hvern mánuð.
Létt framkvæmd
Yfirferð auglýsinga og texta, ráðgjöf við herferðir og verkleg þátttaka.
Mánaðarleg skýrsla
Yfirferð á því sem var gert og hvernig samstarfið gengur.
SVONA VIRKAR ÞETTA
Sama hringrás í hverjum mánuði
Samstarfið hefst á spurningalista og byrjunarfundi. Eftir það fylgir hver mánuður sama takti, svo þú veist alltaf að hverju þú gengur.
01
Staðan tekin
Hvar stendur reksturinn núna og hvað hefur breyst frá síðasta mánuði?
02
Aðstæður greindar
Vefsíðan, skilaboðin, auglýsingarnar og efnið skoðuð í samhengi.
03
Verkefni mótuð
Aðgerðir mánaðarins forgangsraðaðar út frá markmiðunum.
04
Verkefni framkvæmd
Verkefnin fara af stað, með léttri framkvæmd og yfirferð frá hiphip.
05
Árangur metinn
Hvað virkaði, hvað ekki, og hvað er gert næst.
↻
Svo byrjar hringrásin aftur, og hver mánuður byggir á því sem virkaði síðast.
ÁHYGGJULAUST SAMSTARF
Ánægja eða endurgreitt
Ef samstarfið stenst ekki væntingar og markmiðin sem sett eru í upphafi færðu fyrsta mánuðinn endurgreiddan að fullu.
ENGIN BINDING
Eina bindingin er árangur
Það er enginn ávinningur í því að halda viðskiptavinum í samstarfi sem þeir eru ekki sáttir við. Þú getur skipt um pakka eða hætt þegar þér hentar.
TAKMARKAÐUR FJÖLDI
Einungis örfá pláss í boði
Ástæðan er einföld: hiphip vinnur með afmörkuðum fjölda viðskiptavina í einu, til að veita hverjum og einum bestu þjónustuna.
Þarftu annað umfang?
MINNA UMFANG
Hjálpari, hægri höndin þín
49.600 kr.
Ráðgjöf og aðgerðir sem fyrirtækið framkvæmir sjálft.
MEIRA UMFANG
Gúrú, markaðsstjóri til leigu
173.600 kr.
Stefna, full framkvæmd og stjórn herferða.
Verð á mánuði með vsk. Bera saman alla pakkana