Af hverju Meta auglýsingar einar og sér duga sjaldan lengur
- Hafþór Pálsson
- Aug 13
- 1 min read
Facebook og Instagram auglýsingar eru enn öflugar, en að keyra þær í tómarúmi er algengasta ástæðan fyrir vonbrigðum.
Flest lítil og meðalstór fyrirtæki byrja markaðssetningu sína á Meta auglýsingum. Það er skiljanlegt, aðgengið er lágt og árangur getur komið hratt. En eftir að hafa unnið með fjölda herferða sést sama mynstrið aftur og aftur: fyrirtæki setja allt fjármagnið í Meta, sjá ágæta byrjun, og svo dettur árangurinn niður eftir nokkrar vikur.
1. Meta finnur þína bestu viðskiptavini hraðar en þú heldur Algrímið lærir hratt og "brennir" upp þrengsta markhópinn þinn á skömmum tíma. Þegar það gerist hækkar kostnaður á hverja niðurstöðu, oft án nokkurrar viðvörunar.
2. Retargeting gerist ekki sjálfkrafa, það þarf uppbyggingu Fæst fyrirtæki eru með skýra stefnu fyrir fólk sem hefur þegar séð auglýsinguna en ekki keypt. Þar tapast oft mesti ávinningurinn.
3. Ein rás er áhættusöm rás Þegar Meta breytir algríminu, sem gerist reglulega þá lendir allt markaðsstarfið í uppnámi ef það er eina rásin í spilinu.
Meta auglýsingar eru frábært verkfæri, en þær virka best sem hluti af stærri heild, ekki sem eina lausnin.
Ertu ekki viss hvort Meta auglýsingarnar þínar séu að ná fullum árangri? Hafðu samband og við förum yfir stöðuna.


Comments