top of page

FRÍ MARKAÐSGREINING

Vantar þig aðstoð við markaðsmálin?

Fáðu fría greiningu á stöðunni hjá þér, senda sem skýrslu með myndbandsyfirferð. Engin skuldbinding.

Tekur tvær mínútur að skrá sig

Kannast þú við eitthvað af þessu?

Markaðsmálin sitja á hakanum

Ekki af áhugaleysi heldur af tímaleysi. Reksturinn tekur daginn og markaðsmálin lenda alltaf aftast í röðinni.

Þú veist ekki hvar á að byrja

Hugmyndirnar eru til staðar en það vantar einhvern til að segja hvað skiptir máli núna og hvað má bíða.

Það sem er gert hangir ekki saman

Stakir póstar, stök verkefni og engin heildarmynd. Þá er erfitt að sjá hvað skilar í raun árangri.

FRÍTT OG ÁN SKULDBINDINGAR

Greining á markaðsmálunum þínum

Þú skráir þig hér að neðan og segir stuttlega frá fyrirtækinu. hiphip fer yfir stöðuna og vinnur greiningu sem á við þinn rekstur, ekki almennar ráðleggingar.

Þú færð skýrsluna senda innan þriggja virkra daga ásamt stuttu myndbandi þar sem farið er yfir hana. Enginn fundur, ekkert sem þú þarft að mæta á. Engin skuldbinding!

Það sem þú færð

✓

Yfirferð á því hvar markaðsstarfið stendur í dag

✓

Hvað er að skila árangri og hvað er að taka tíma án þess að skila einhverju

✓

Nokkur atriði sem þú getur farið að vinna í strax í dag!

✓

Enginn fundur og engin skuldbinding

Hvað er í boði

Markaðsmál, sala, þjónusta og rekstur hanga saman. Þjónustan er valin eftir því hvar skórinn kreppir hjá þér.

Markaðsráðgjöf

Heildstæð ráðgjöf þar sem farið er í kjarnann, tækifærin skoðuð og skýr stefna mótuð.

Þjónusturáðgjöf

Betri upplifun viðskiptavina með skýrari þjónustu, betri ferlum og samræmdri framkvæmd.

Stafræn markaðssetning

Skipulag og framkvæmd stafrænnar markaðssetningar, uppsetning og umsjón með herferðum.

Söluráðgjöf

Skýrara söluferli, betri eftirfylgni og markvissari samskipti við viðskiptavini.

Rekstrarráðgjöf

Áhersla á ferla, skipulag og flæði til að einfalda reksturinn og bæta skilvirkni.

CRM og sjálfvirkni

Viðskiptatengsl, ferlar og gögn sett í samhengi til að styðja skýrara og markvissara starf.

Áskriftarpakkarnir

Fjögur umfang, allt frá léttri ráðgjöf upp í fulla framkvæmd og eignarhald á verkefnum. Þú byrjar þar sem reksturinn stendur í dag og færir þig upp þegar hann vex.

Hjálpari

Hægri höndin þín

49.600 kr.

á mánuði

Ráðgjöf og aðgerðir sem fyrirtækið framkvæmir sjálft.

Séní

Markaðsfulltrúi til leigu

86.800 kr.

á mánuði

Aðgerðaáætlun og létt framkvæmd í hverjum mánuði.

ALGENGAST

Stefna, full framkvæmd og stjórn herferða.

Gúrú

Markaðsstjóri til leigu

173.600 kr.

á mánuði

Afreks

Markaðsleiðtogi til leigu

446.400 kr.

á mánuði

Viðvera, vinnustofur og eignarhald á verkefnum.

Verð með vsk. Pakkarnir eru ekki takmarkandi og hægt er að vinna umfram þá eftir samkomulagi.

hiphipprofile_edited.png

UM HIPHIP

Ástríða fyrir litlum og meðalstórum fyrirtækjum er ástæða þess að hiphip verður til.

Á bak við hiphip stendur Hafþór Ingi Pálsson, markaðsráðgjafi með yfir tíu ára reynslu af markaðsmálum hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum. BSc í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og meistaragráða í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst.

Markaðsmál, sala, þjónusta og rekstur eru hugsuð sem ein heild. Byrjað er á því að skilja samhengið og lausnir eru ekki afhentar ofan frá heldur þróaðar í sameiningu.

Fáðu fría greiningu

Fáðu greiningu sem á við þitt fyrirtæki, ekki almennar ráðleggingar. Skýrslan og myndbandsyfirferðin berast þér innan þriggja virkra daga.

Þetta er það sem greiningin byggir á. Nokkrar línur duga.

Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar til að vinna greininguna. Engin skuldbinding fylgir.

bottom of page